Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Minnisvarði um Spánverjavígin

Á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 22. apríl, var afhjúpaður minnisvarði um Spánverjavígin við Galdrasafnið á Hólmavík.

Spanverjavigin

Við athöfnina fluttu ávörp Martin Garitano, héraðsstjóri Gipuzkoa í Baskalandi, Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra, Jónas Guðmundsson sýslumaður Vestfjarða og Esther Ösp Valdimarsdóttir tómstundafulltrúi fyrir hönd Strandabyggðar og Hólmavíkur. Jónas Guðmundsson sýslumaður afturkallaði tilskipun forvera síns, Ara í Ögri, um að allir Baskar skyldu réttdræpir á Vestfjörðum. Leikskólabörn á Hólmavík sungu nokkur lög, Tapio Koivukari og fulltrúar frá Baskalandi fluttu sjóferðabæn og Steindór Andersen kvað rímur úr Fjölmóði eftir Jón lærða Guðmundsson við undirleik Ólafs J.Engilbertssonar á steinhörpu.

Að atburðinum stóðu Baskavinafélagið á Íslandi, menningarstofnanir í Baskalandi Spánar og í Bandaríkjunum auk mennta- og menningarmálaráðuneytisins og sýslumannsembættisins á Vestfjörðum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum