Hoppa yfir valmynd
24. júní 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsóknir um stöður skólameistara

Umsækjendur um stöður skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Kvennaskólans í Reykjavík og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum

Fréttatilkynning - 3/2015 - Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga – umsækjendur

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga rann út föstudaginn 5. júní sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust þrjár umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru:

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir,

Sigurlína H. Styrmisdóttir og

Vala Ósk Bergsveinsdóttir. 

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.

Fréttatilkynning - 4/2015 - Embætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík – umsækjendur

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík rann út föstudaginn 5. júní sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sex umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru:

Guðrún Ragnarsdóttir,

Hildigunnur Gunnarsdóttir,

Hjalti Jón Sveinsson,

Kolbrún Kolbeinsdóttir,

Kristján Bjarni Halldórsson og

Vala Ósk Bergsveinsdóttir.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. nóvember nk., að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.

Fréttatilkynning - 5/2015 - Embætti skólameistara Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum – umsækjandi

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum  rann út föstudaginn 11. júní sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti barst ein umsókn um stöðuna. Umsækjandi er:

Helga Kristín Kolbeinsdóttir.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum