Hoppa yfir valmynd
3. september 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjölmiðlanefnd skipuð til næstu fjögurra ára

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað fjölmiðlanefnd til næstu fjögurra ára.
Fjolmidlanefnd2

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað fjölmiðlanefnd til næstu fjögurra ára. Lögum samkvæmt eru tveir fulltrúar skipaðir samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, einn samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins og einn samkvæmt tilnefningu Blaðamannafélags Íslands. Þann fimmta skipar ráðherra án tilnefningar en ráðherra skipar einnig formann nefndarinnar.

Fjölmiðlanefnd skipa:
– Karl Axelsson, hæstaréttarlögmaður og dósent við lagadeild Háskóla Íslands, formaður
– Hulda Árnadóttir héraðsdómslögmaður, varaformaður
– Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður
– Arna Schram, forstöðumaður Listhúss Kópavogsbæjar og fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands
– Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands

Varamenn:
- Birgir Tjörvi Pétursson héraðsdómslögmaður
– Marteinn Másson hæstaréttarlögmaður
– Kolbrún Sævarsdóttir héraðsdómari
– Björn Vignir Sigurpálsson, formaður Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands
– Birgir Guðmundsson, dósent í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri

Skipunartímabil nefndarinnar er frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2019.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum