Málþing um hagræn áhrif íþrótta
Kynnt verður frumrannsókn á helstu þáttum íþrótta sem hafa efnahagsleg áhrif á samfélagið á málþingi 8. október
Fimmtudaginn 8. október kl. 15:00-17:00 fer fram málþing um hagræn áhrif íþrótta í samfélaginu. Kynnt verður frumrannsókn á helstu þáttum íþrótta sem hafa efnahagsleg áhrif á samfélagið. Málþingið er haldið í samstarfi mennta- og menningarmálaráðuneytis, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Háskóla Íslands.
Málþingið er ætlað öllum sem láta sig íþróttir og áhrif þeirra í samfélaginu varða.
Málþingið verður haldið í Laugardalshöll, eystri inngangur
Dagskrá:
- 15:00-15:10 – Opnun málþings
- 15:10-16:00 – Kynning áfangaskýrslu, dr. Þórólfur Þórlindsson prófessor og dr. Viðar Halldórsson lektor
- 16:00-16:10 – Kaffihlé
- 16:10-16:40 – Pallborðsumræður, Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra, Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ, dr. Þórólfur Þórlindsson, Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og dr. Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands
- 16:40-17:00 – Fyrirspurnir og umræður úr sal
Málþingsstjóri: Hulda Bjarnadóttir framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu
Skráning: [email protected]