Hoppa yfir valmynd
16. ágúst 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Listamannalaun 2017

Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2017 í samræmi við  ákvæði laga nr. 57/2009.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september, kl. 17:00.

- launasjóður hönnuða
- launasjóður myndlistarmanna
- launasjóður rithöfunda
- launasjóður sviðslistafólks
- launasjóður tónlistarflytjenda
- launasjóður tónskálda 

Umsóknir skiptast í eftirfarandi flokka: 

• Starfslaun fyrir einn listamann í einn launasjóð – eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð
• Starfslaun fyrir skilgreint samstarf listamanna í einn launasjóð – eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð
• Starfslaun fyrir sviðslistahópa – athugið að sú breyting hefur verið gerð að sviðslistahópaumsókn er felld inn í atvinnuleikhópaumsókn

Umsókn um starfslaun, lög og reglugerðir eru á vefslóðinni  www.listamannalaun.is  

Nota þarf íslykil / rafræn skilríki við umsóknina.  Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu vegna fyrri starfslauna hefur verið skilað til stjórnar listamannalauna, sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009.

Breytingar frá stjórn:

• Ferðastyrkir verða ekki veittir
• Eingöngu verður tekið við rafrænum fylgigögnum í gegnum umsóknarkerfið 

Nánari upplýsingar:
[email protected]  
www.rannis.is/sjodir/menning-listir/starfslaun-listamanna/



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum