Hoppa yfir valmynd
17. október 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fagháskólanám

Niðurstöður og tillögur verkefnishóps um fagháskólanám kynntar og undirrituð viljayfirlýsing um stofnun þróunarsjóðs fyrir þróunarverkefni um fagháskóla.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið gaf út í júní 2014 Hvítbók um umbætur í menntun , þar sem koma fram áherslur um eflingu starfsmenntunar. Áherslur Hvítbókarinnar byggjast m.a. á ábendingum skýrslu sem kom út árið 2013 kom út á vegum OECD skýrslan Leikni að loknu námi ( Skillsbeyond school ). Í Hvítbókinni kemur fram að afstaða skuli tekin til þess hvort stofna skuli sérstakt fagháskólastig. Í september 2014 skipaði mennta- og menningarmálaráðherra verkefnishóp til að fylgja áherslum Hvítbókarinnar eftir og skilgreindi hópurinn markmið, mælikvarða og aðgerðir til að hrinda áherslunum í framkvæmd. Sneri eitt markmiðið sérstaklega að því að byggja upp fagháskólastig til framtíðar.

Í dag var kynnt skýrsla verkefnishóps um fagháskólanám sem skipaður var í mars 2016. Í hópnum sátu auk fulltrúa ráðuneytisins, fulltrúar Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB,  Landssambands íslenskra stúdenta, Sambands íslenskra framhaldsskólanema, Samstarfsnefndar háskólastigsins, Samtaka atvinnulífsins og Skólameistarafélags Íslands. 

Megintillögur skýrslunnar:

A Þróunarverkefni

Farið verði af stað með fagháskólanám sem þróunarverkefni árið 2017 og a.m.k  5 mismunandi námsleiðir verði skilgreindar til þróunar og innleiðingar.  Þeim er ætlað að verða fyrirmynd almenns fagháskólanáms varðandi form náms og innihald. 

B Samstarfsráð um fagháskólanám

Ráðherra skipar formlegan samráðsvettvang sem heitir samstarfsráð um fagháskólanám þeirra aðila sem nú skipa verkefnishóp um fagháskólanám auk Sambands íslenskra sveitarfélaga.  Ráðherra skipar formann.

Samstarfsráðið hafi eftirfarandi verksvið:

  • Að skilgreina frekar markmið með þróunarverkefninu og einstökum þáttum þess

  • Að leggja fram tillögu um kostnað og fjármögnun fagháskólanáms til framtíðar fyrir maí 2018

  • Að leggja fram tillögu um hvaða nám verði fagháskólanám og geti farið af stað árið 2017 og 2018 á grundvelli greiningar og forgangsröðunar atvinnulífsins í samráði við háskóla, framhaldsskóla og aðrar menntaveitur

  • Að vinna að skilgreiningu á raunfærnimati á háskólastigi og gera tillögu að innleiðingu þess.

Samstarfsráðið kýs úr sínum hópi fimm manna hóp sem auk formanns samstarfsráðsins mynda verkefnisstjórn, sem ber ábyrgð á framkvæmd þróunarverkefnisins gagnvart samstarfsráðinu og ráðherra. Þar skal aðild stéttarfélaga, atvinnurekenda, framhaldsskóla, háskóla og ráðuneytis tryggð.

C Þróunarsjóður

Ríkið og atvinnulífið (SA, ASÍ, BSRB) stofni sameiginlegan þróunarsjóð til að fjármagna þróunarverkefnið fyrir vorönn 2017 og skólaárið 2017-2018. Um sé að ræða einskiptisaðgerð en framtíðarfjármögnun fagháskólanáms fari eftir tillögum samstarfsráðsins um framtíðarskipan námsins.

Á fundinum undirrituðu Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra, Hannes G. Sigurðsson framkvæmdastjóri SA, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB viljayfirlýsingu um stofnun þróunarsjóðs um þróunarverkefni sem nýtast sem fyrirmyndir um skipulag, nám og gæðamat í fagháskólanámi. Sjóðnum er ætlað að styrkja þróun og framboð á námsleiðum, kostnað við rekstur verkefna, kynningu og innleiðingu.

Viljayfirlýsingin:

Í samræmi við tillögur verkefnishóps um fagháskólanám lýsa mennta- og menningarmálaráðuneyti, Samtök atvinnulífsins (SA), Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og BSRB yfir vilja sínum til þess að stofna þróunarsjóð um þróunarverkefni sem  nýtast sem fyrirmyndir um skipulag, nám og gæðamat í fagháskólanámi.

Sjóðurinn styrkir þróun og framboð á námsleiðum, kostnað við rekstur verkefna, kynningu og innleiðingu.

SA, ASÍ og BSRB lýsa sameiginlega yfir vilja til að til að starfsmenntasjóðir á forræði aðila eða aðildarsamtaka þeirra setji í sjóðinn 50 milljónir króna við stofnun hans hinn 1. janúar næstkomandi.

Mennta- og menningarmálaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, lýsir yfir vilja til að við gerð fjárlaga árið 2017 verði veitt 100 milljón króna framlagi í sjóðinn.

Sjóðinn skal nýta vorið 2017 og skólaárið 2017-18.

Í stjórn sjóðsins skulu sitja fimm stjórnarmenn, tveir fulltrúar skipaðir af ráðherra og þrír tilnefndir af öðrum stofnaðilum.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum