Hoppa yfir valmynd
21. desember 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tilnefning Surtseyjar á heimsminjaskrá UNESCO

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu mennta- og umhverfisráðherra um að láta hefja vinnu við tilnefningu Surtseyjar á heimsminjaskrá UNESCO

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu mennta- og umhverfisráðherra um að láta hefja vinnu við tilnefningu Surtseyjar á heimsminjaskrá UNESCO og senda umsókn þess efnis til nefndar um arfleifð þjóðanna fyrir 1. febrúar 2006.

Ríkisstjórnin samþykkti 4. desember 2001 tillögu um að tilnefna Þingvelli og Skaftafell á heimsminjaskrá UNESCO. Gert var ráð fyrir að þessir staðir færu inn á skrána bæði sem náttúru- og menningarminjar, þ.e sem blandaðir staðir. Nefnd um arfleifð þjóðanna (World Heritage Committee) samþykkti 2. júlí 2004 að Þingvellir skyldu settir á listann sem menningarlandslag. Unnið er að undirbúningi þess að ljúka tilnefningu Þingvalla sem náttúruminjastaðar.

Frá því ríkisstjórnin samþykkti að tilnefna Skaftafell á heimsminjaskrána hafa ýmsar forsendur breyst og því þarf mun lengri tíma til að undirbúa tilnefningu Skaftafells en upphaflega var ætlað. Menntamálaráðherra setti á fót í byrjun árs 2005 sérstaka heimsminjanefnd sem hefur það hlutverk að vera vettvangur samráðs um framfylgd samnings UNESCO frá 1972 um menningar- og náttúruarfleifð heimsins hér á landi og undirbúa tilnefningu íslenskra staða á heimsminjaskrá. Nefndin vinnur nú að endurskoðun á yfirlitsskrá Íslands í ljósi fenginnar reynslu við tilnefningaferli Þingvalla.

Á grundvelli þeirrar vinnu og til þess að láta ekki of langt líða á milli tilnefninga Íslands á heimsminjaskrá UNESCO og þar sem enn er talsvert í land með að vinna við tilnefningu Skaftafells geti hafist, hefur nefndin lagt til við menntamálaráðherra og umhverfisráðherra að næsti staður sem Ísland tilnefnir verði Surtsey. Surtsey er á yfirlitskrá Íslands sem náttúruminjar.

Allar nauðsynlegar upplýsingar um jarðfræði, lífríki og þróun Surtseyjar frá lokum gossins fram á þennan dag liggja fyrir og þess vegna er mögulegt að ganga frá umsókn fyrir 1. febrúar á næsta ári til nefndar um arfleifð þjóðanna um að Surtsey verði bætt á heimsminjaskrá UNESCO. Náttúrurfræðistofnun Íslands hefur tekið að sér að útbúa tilnefningaskjalið um Surtsey.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum