Hoppa yfir valmynd
31. ágúst 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starf nefndar um heildarendurskoðun á grunnskólalögum nr. 66/1995

Nefnd skipuð af menntamálaráðherra vinnur nú að heildarendurskoðun laga um grunnskóla nr. 66/1995, með síðari breytingum.

Nefnd skipuð af menntamálaráðherra vinnur nú að heildarendurskoðun laga um grunnskóla nr. 66/1995, með síðari breytingum. Nefndinni er m.a. ætlað að hafa til hliðsjónar nýjustu breytingar á grunnskólalögum, reynsluna af flutningi grunnskólans til sveitarfélaga, áform um breytta námsskipan til stúdentsprófs og aukna samfellu og sveigjanleika í skólastarfi. Lögð er áhersla á að nefndin hafi víðtækt samstarf við ýmsa hagsmunaaðila við endurskoðun laganna. Formaður nefndarinnar er Guðrún Ebba Ólafsdóttir fulltrúi menntamálaráðherra. Auk hennar sitja í nefndinni Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ fulltrúi ráðherra, Gerður G. Óskarsdóttir sviðsstjóri menntasviðs Reykjavíkur og Jón Kr. Sólnes, lögmaður, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Unnar Þór Böðvarsson skólastjóri Hvolsskóla og Þórður Árni Hjaltested varaformaður Félags grunnskólakennara, tilnefndir af Kennarasambandi Íslands, og María Kristín Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla, tilnefnd af Heimili og skóla. Með nefndinni starfa Guðni Olgeirsson og Helga Þórisdóttir frá menntamálaráðuneyti.

Nefnd um endurskoðun grunnskólalaga hefur á undanförnum mánuðum haldið fundi með fjölmörgum hagsmunaaðilum þar sem þeim hefur gefist kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Einnig hefur nefndin hitt fulltrúa allra stjórnmálaflokka á Alþingi. Nefndin hefur haldið fundi víða um land með fulltrúum sveitarstjórna, starfsmanna skóla og foreldrum og einnig kynnt sér sjónarmið grunnskólanemenda. Þessu víðtæka samráðsferli nefndarinnar er að ljúka um þessar mundir en nefndin hefur ákveðið að auglýsa eftir athugasemdum og ábendingum frá almenningi þar sem fólki gefst kostur á að koma á framfæri skoðunum sínum á því hvaða meginsjónarmið ætti að hafa að leiðarljósi við endurskoðun grunnskólalaga og hver framtíðarsýn eigi að vera í málefnum grunnskólans. Einnig eru allar athugasemdir við grunnskólalögin vel þegnar. Hægt er að koma ábendingum á framfæri við Guðna Olgeirsson starfsmann nefndarinnar, [email protected] fyrir lok september. Nefndin stendur að málþingi um framtíðarsýn í málefnum grunnskólans laugardaginn 11. nóvember nk. og verður það nánar auglýst síðar. Stefnt er að því að nefndin ljúki störfum í byrjun árs 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum