Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Æskulýðssjóður 2006 - seinni úthlutun

Menntamálaráðherra hefur samþykkt styrkveitingar úr Æskulýðssjóði að fjárhæð 4.230.000 kr. til 23 verkefna.

Menntamálaráðherra hefur samþykkt styrkveitingar úr Æskulýðssjóði að fjárhæð 4.205.000 kr. til 23 verkefna. Alls bárust 42 umsóknir um styrki að fjárhæð 16.547.200 kr.

Þeir sem hlutu styrki úr Æskulýðssjóði við seinni úthlutun árið 2006 eru eftirtaldir:

Nafn umsækjanda Styrkupphæð
Æskulýðsfélag Dómkirkjunnar vegna verkefnisins „Leikum saman-miðborgarstarf“

225.000.-kr.

Unglingadeild Samtakanna 78 vegna leiðtoganámskeiðs

200.000.-kr.

Kristilegt stúdentafélag vegna leiðtoganámskeiðs á Akureyri

70.000.-kr.

Alþjóðlegar sumarbúðir barna vegna þjálfunar farastjóra

150.000.-kr.

Bandalag íslenskra námsmanna vegna þjálfunar forsvarsmanna aðildarfélaga BÍSN

150.000.-kr.

ÆSKÞ vegna æskulýðsmóts

200.000.-kr.

Alþjóðleg umgmennaskipti vegna þjálfunar leiðtoga

150.000.-kr.

Bandalag íslenskra skáta vegna þjálfunar leiðtoga í skátastarfi

375.000.-kr.

KFUM-K Húsavík vegna leiðtogaþjálfunar í Norðurþingi

375.000.-kr.

Iðnnemasamband Íslands vegna þjálfunar forystufólks INSÍ

225.000.-kr.

Æskulýðsfélag Lágafellskirkju vegna Sirkus TIKK-TAKK

110.000.-kr.

KFUM-K á Íslandi vegna leiðtoganámskeiðs í félagsvirkni

300.000.-kr.

Bandalag íslenskra skáta vegna námskeiðahalds um efni bókarinnar Verndum þau

200.000.-kr.

Kristileg skólasamtök vegna verkefnisins „Eru allir inni í myndinni“ ljósmyndanámskeið fyrir framhaldsskólanemendur

150.000.-kr.

Landssamband æskulýðsfélaga vegna verkefnisins „Lifandi bókasafn“

100.000.-kr.

KFUM-K á Íslandi vegna námskeiðahalds um efni bókarinnar Verndum þau

300.000.-kr.

Nordklúbbur Norræna félagsins vegna hópeflisverkefnis

50.000.-kr.

Bandalag íslenskra skáta vegna útilífsverkefnis skáta á Kjalarnesi

75.000.-kr.

ÆSKR vegna verkefnisins „Changemaker“

175.000.-kr.

Ungmennadeild Rauða kross Íslands Akranesi vegna kynfræðslu og ráðgjafar fyrir börn og unglinga

125.000.-kr.

Kristniboðsfélag ungs fólks vegna verkefnisins „Annað sjónarhorn“

75.000.-kr.

Ungmennafélag Íslands vegna námskeiðahalds um efni bókarinnar Verndum þau

200.000.-kr.

KFUM-K á Íslandi vegna verkefnisins „Jól í skókassa“

225.000.-kr.


Æskulýðssjóður starfar samkvæmt reglum nr. 113 frá 22. janúar 2004. Stjórn Æskulýðssjóðs er skipuð sömu mönnum og skipa Æskulýðsráð ríkisins og gerir stjórnin tillögur til menntamálaráðherra um úthlutun úr sjóðnum. Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja eftirtalin verkefni:

  1. Sérstök verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
  2. Þjálfun æskulýðsleiðtoga og leiðbeinenda til virkrar þátttöku í æskulýðsstarfi, m.a. með námskeiðum og þátttöku í þeim.
  3. Nýjungar og tilraunir í félagsstarfi barna og ungmenna.
  4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka á sviði félagsstarfa.

Styrkir taka hvorki til árvissra eða fastra atburða í félagsstarfi, svo sem þinga, móta eða þess háttar atburða né ferðahópa.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum