Hoppa yfir valmynd
3. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menningarsamningur við sveitarfélög á Norðurlandi vestra

Þriðjudaginn, 1. maí 2007, var undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við sveitarfélög á Norðurlandi vestra um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.

Þriðjudaginn, 1. maí 2007, var undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við sveitarfélög á Norðurlandi vestra um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Tilgangur samningsins er að efla menningarstarf sveitarfélaganna og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaganna við slíkt starf í einn farveg. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra undirritaði samninginn fyrir hönd ríkisins en Adolf Berndsen, formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna. Er þetta í fyrsta sinn sem gengið er til slíks samstarfs við sveitarfélög á Norðurlandi vestra en áður hefur verið gengið til samstarfs við sveitarfélög í öðrum landshlutum með sambærilegum hætti.

Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á þessu sviði verður innan menningarráða. Hafa þau meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna og verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu, jafnframt því að annast framkvæmd samningsins. Jafnframt gerð menningarsamnings milli ríkis og sveitarfélaga munu sveitarfélögin ganga frá samstarfsamningi sem snýst um að samræma aðgerðir á sviði menningarmála á þeirra starfssvæði. Norðurland vestra verður eitt starfssvæði en á Vestfjörðum eru skilgreind þrjú samstarfssvæði, Strandasýsla og Reykhólahreppur, Vestur-Barðastrandasýsla og Ísafjarðarsýsla.

Framlög ríkisins til samningsins verða 30 m.kr. á árinu 2007, 32 m.kr. árið 2008 og 33 m.kr. árið 2009 en sveitarfélögin leggja jafnframt fram fé til sameiginlegra verkefna hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með eigin framlögum. Skal við það miðað að árið 2008 nemi framlag sveitarfélaganna a.m.k. 17,5 % af þeirri heildarfjárhæð sem veitt er til verkefnastyrkja og 25 % árið 2009. Þá skulu sveitarfélögin greiða að lágmarki þriðjung kostnaðar vegna starfsemi Menningarráðs Norðurlands vestra, þ.m.t. skrifstofuhald og laun, árið 2008 og helming kostnaðar árið 2009. Gildistími samninganna er til ársloka 2009.

Samninginn er að finna á vef menntamálaráðuneytis, menntamalaraduneyti.is, vef samgönguráðuneytis, samgonguraduneyti.is og á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra www.ssnv.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum