Hoppa yfir valmynd
4. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti skólameistara Menntaskólans á Ísafirði

Menntamálaráðherra hefur skipað Jón Reyni Sigurvinsson í embætti skólameistara Menntaskólans á Ísafirði til fimm ára frá 1. ágúst 2007 að telja.

Menntamálaráðherra hefur skipað Jón Reyni Sigurvinsson í embætti skólameistara Menntaskólans á Ísafirði til fimm ára frá 1. ágúst 2007 að telja. Jón Reynir er aðstoðarskólameistari við Menntaskólann á Ísafirði og hefur hann starfað við skólann frá árinu 1987, með hléum, sem framhaldsskólakennari og síðar aðstoðarskólameistari. Þrjár umsóknir bárust um embættið sem sendar voru skólanefnd Menntaskólans á Ísafirði til umsagnar skv. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996. Skólanefndin mælti í umsögn sinni til menntamálaráðherra einróma með því að Jóni Reyni Sigurvinssyni yrði veitt embættið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum