Hoppa yfir valmynd
4. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samningar um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu

Menntamálaráðherra og samgönguráðherra hafa undirritað samninga um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.

Menntamálaráðherra og samgönguráðherra hafa undirritað samninga um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Suðurlandi og Suðurnesjum um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Er þetta í fyrsta sinn sem gengið er til slíks samstarfs við þessa landshluta en áður hefur verið gengið til samstarfs við Austurland árið 2001 og Vesturland árið 2005 með sambærilegum hætti. Með þessu er landið allt, utan höfuðborgarsvæðisins, nú tengt saman með menningarsamningum.

Tilgangur menningarsamninganna er að efla menningarstarf á viðkomandi landsvæði og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaganna við slíkt starf í einn farveg. Jafnframt eru áhrif sveitarfélaga á forgangsröðun verkefna aukin. Menningarráð verður samstarfsvettvangur sveitarfélaganna og hefur meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna og verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu jafnframt því að annast framkvæmd samningsins. Menningarráðið hefur að auki það hlutverk að samræma aðgerðir á sviði menningarmála skv. sérstökum samstarfssamningi þar um. Með samningunum skapast dýrmæt tengsl milli ráðuneytanna og sveitarfélaganna víða um land en reynslan sýnir að tengslin verða á landsvísu.

Ríkið leggur til framlög til samninganna en sveitarfélögin leggja jafnframt fram fé til sameiginlegra verkefna hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með eigin framlögum. Framlög ríkisins nema á þessu ári alls 196 m.kr. til menningarsamninganna sjö. Þá skal við það miðað að árið 2008 nemi framlag sveitarfélaganna a.m.k. 17,5% af þeirri heildarfjárhæð sem veitt er til verkefnastyrkja og 25% árið 2009. Þá skulu sveitarfélögin greiða að lágmarki þriðjung kostnaðar vegna starfsemi Menningarráðsins árið 2008 og helming kostnaðar árið 2009. Gildistími samninganna er til ársloka 2009.

Umræða um byggðamál hefur mjög beinst að málefnum atvinnulífs, samgöngum og í auknum mæli menntamálum. Öflugt menningarlíf er þó einn af þeim þáttum sem ráða miklu um búsetu fólks. Með samningunum við sveitarfélögin í landinu vænta stjórnvöld þess að öflugt menningarlíf muni blómstra um land allt.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum