Hoppa yfir valmynd
9. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla árið 2007

Þróunarsjóður leikskóla starfar samkvæmt reglum nr. 163/2001 sem settar eru á grundvelli 5. gr. laga nr. 78/1994 um leikskóla.

Þróunarsjóður leikskóla starfar samkvæmt reglum nr. 163/2001 sem settar eru á grundvelli 5. gr. laga nr. 78/1994 um leikskóla. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi.

Í janúar sl. var auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna á tveimur forgangssviðum:

A. Náttúruvísindi í leikskólum með sérstaka áherslu á tengsl við skapandi starf.

B. Hvernig læra leikskólabörn?

Auk þess var auglýst eftir almennum þróunarverkefnum.

Þriggja manna úthlutunarnefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Kennaraháskóla Íslands, Félagi leikskólakennara og menntamálaráðuneyti.Umsýsla með Þróunarsjóði leikskóla er í höndum ráðuneytisins og SRR (Símenntun, rannsóknir, ráðgjöf).

Undanfarin ár hefur sjóðurinn haft 3 millj. króna til úthlutunar. Í ár var að frumkvæði menntamálaráðherra ákveðið að hækka fjármagn til úthlutunar um helming eða alls 6 millj. króna.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu úthlutunarnefndar, að veita styrki til eftirtalinna 17 verkefna skólaárið 2007-2008:


Verkefni Styrkþegi Upphæð
Að læra er leikur Litlulaugaskóli 300.000
Breytt og fjölbreytt tónlistarstarf í leikskólum Heilsuleikskólinn Urðarhóll 300.000
Dalurinn okkar Leikskólinn Furugrund 600.000
Ég og leikskólinn minn. Ferlimöppur til að skapa markvistt upplýsingaflæði milli skóla og heimilis Leikskólinn Sólvellir 300.000
Fimm ára og fær í flestan sjó Leikskólinn Iðavöllur 500.000
Fjölgreindir í leikskólastarfi Leikskólinn Núpur 500.000
Fuglaveröld - útrás Ingibjörg A. Ólafsdóttir 200.000
Hvernig læra leikskólabörn að synda? Leikskólinn Kjarrið 100.000
Hvernig læra leikskólabörn? Leikskólinn Hulduheimar 500.000
Mál fyrir alla Fálkaborg 400.000
Náttúruvísindi er leikur einn Leikskólinn Hulduberg 250.000
Smíðagaman - smíðakennsla fyrir elstu nemendur leikskóla Alda Áskelsdóttir 200.000
Stærðfræðin í leik og starfi leikskólans Félags- og skólaþjónustan Útey 250.000
Umhverfið sem þriðji kennarinn Fanný K Heimisdóttir 400.000
Uppeldisfræðilegar skráningar, hvernig læra leikskólabörn? Leikskólinn Fagrabrekka 300.000
Virðing og jákvæð samskipti Leikskólinn Gefnarborg 400.000
Vísindaleikir II Kennaraháskóli Íslands 500.000

Alls:

6.000.000



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum