Hoppa yfir valmynd
26. október 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2008 fer fram dagana 1. nóvember til 25. nóvember

Innritun í dagskóla fer fram dagana 1. nóvember til 25. nóvember 2007 á skólavef menntamálaráðuneytis, menntagatt.is.

Innritun í dagskóla fer fram dagana 1. nóvember til 25. nóvember 2007 á skólavef menntamálaráðuneytis, menntagatt.is. Allar umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar. Sótt er um á netinu og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna. Einstakir skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartímabil og er upplýsingar um það að finna á heimasíðu viðkomandi skóla.

Umsækjendur sem ekki hafa veflykil tiltækan geta sótt hann á menntagatt.is. Nemendum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um.

Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt skólum til vara, sem og námsbraut og önnur þjónusta sem er í boði í einstökum skólum.

Innritun í nám í kvöldskóla, fjarnám og annað nám en í dagskóla verður með hefðbundnum hætti. Innritun fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa slíkt nám í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að hafa samband við viðkomandi skóla hyggist þeir stunda nám í kvöldskóla eða fjarnámi. Upplýsingar um framhaldsskóla má finna á menntagatt.is.

Rafræn innritun auðveldar yfirsýn yfir eftirspurn nemenda eftir skólum og námsbrautum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum