Hoppa yfir valmynd
29. febrúar 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Undirritun samnings við Menntafélagið um yfirtöku á rekstri Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði föstudaginn 29. febrúar samning við Menntafélagið ehf. um að annast rekstur nýs framhaldsskóla er verður til við sameiningu á rekstri Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands.
idnskoli_fjoltaekni
idnskoli_fjoltaekni

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði föstudaginn 29. febrúar samning við Menntafélagið ehf. um að annast rekstur nýs framhaldsskóla er verður til við sameiningu á rekstri Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands. Samningurinn er til fimm ára og gildir frá 1. júlí 2008.

Skólinn verður stærsti framhaldsskóli landsins með vel á þriðja þúsund nemendur, 250 starfsmenn og yfir 40 námsbrautir. Námsframboð í hinum nýja skóla verður óbreytt til að byrja með en samið verður um þróun námsframboðs í skólasamningi og komið á fót samráðshópi menntamálaráðuneytis og skólans um skólaþróun.

Viðræður um sameiningu skólanna hafa staðið í á annað ár en markmið sameiningarinnar og verksamningsins er:

  • Að móta öflugan iðn- og starfsmenntaskóla sem verði leiðandi í þróun, kennslu og þjónustu í iðn- og starfsmenntun er skilar nemendum verðmætri menntun og atvinnulífinu hæfu starfsfólki.
  • Að fjölga nemendum sem velja sér iðn- eða starfsnám að loknu námi á almennri námsbraut um 10% á samningstímanum.
  • Að auka skilvirkni í iðn- og starfsnámi.
  • Að draga úr brottfalli í iðn- og starfsnámi um 20% á þremur árum.
  • Að jafna hlut kynjanna í einstaka námsgreinum.
  • Að gera iðn- og starfsmenntun eftirsóknarverða fyrir ungt fólk og skipa henni veglegan sess í samfélaginu.
  • Að fjölga möguleikum nemenda í iðn- og starfsmenntun til að leggja stund á nám til stúdentsprófs og viðbótarnám til háskólaeininga.
  • Að efla ábyrgð og áhrif atvinnulífsins á þróun iðn- og starfsmenntunar.

Öllum fastráðnum starfsmönnum Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands verður boðið starf við hinn nýja skóla og halda þeir réttindum sínum og kjörum óskertum. Nemendur sem stunda nám við Fjöltækniskóla Íslands og Iðnskólann í Reykjavík við gildistöku samningsins eiga rétt til að ljúka skilgreindu námi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla. 

Menntafélagið er í eigu Samtaka iðnaðarins, Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samorku, Sambands íslenskra kaupskipaútgerða og Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík og hefur félagið annast rekstur Fjöltækniskóla Íslands með samningi við menntamálaráðuneyti frá árinu 2003. Menntafélagið er ekki rekið í ágóðaskyni heldur rennur allur hugsanlegur ágóði af rekstri þess beint í skólareksturinn.

Samkvæmt samþykktum félagsins munu eigendur þess í upphafi leggja fram 100 milljónir króna til þróunarstarfs í skólanum.

 

 

 

 


 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum