Hoppa yfir valmynd
20. maí 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til framhaldsnáms í Japan (Monbukagakusho)

Japanska ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita Íslendingum Monbukagakusho styrki (á vegum menntamálaráðuneytis Japans, MEXT) til framhaldsnáms í Japan.
Japanski fáninn

Japanska ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita Íslendingum Monbukagakusho styrki (á vegum menntamálaráðuneytis Japans, MEXT) til framhaldsnáms í Japan. Styrkurinn er veittur til tveggja ára fyrir þá sem hefja nám í apríl 2009 en til 18 mánaða fyrir þá sem kjósa að hefja nám í október 2009.

Menntamálaráðuneyti Japans greiðir flugfargjöld, skólagjöld og fá styrkþegar mánaðarlega greiðslu, um 170.000,- japönsk yen. Að tólf mánuðum liðnum verður mánaðarleg greiðsla 160.000,- japönsk yen. (Upphæðir gætu breyst í samræmi við árleg fjárframlög til verkefnisins.)

  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið B.A. eða B.S. gráðu þegar þeir sækja um og er skilyrði að þeir séu fæddir 2. apríl 1974 eða síðar. Umsækjendur geta aðeins sótt um nám í sínum sérgreinum eða á skyldum sviðum.
  • Sérgreinar sem alla jafnan eru ekki kenndar við japanska háskóla koma ekki til greina, nema að umsækjandi hafi þegar verið samþykktur í slíkt nám af viðurkenndum háskóla. Upplýsingar um skóla og leiðbeinendur má fá hjá Sendiráði Japans á Íslandi svo og allar upplýsingar um nánari skilyrði.
  • Umsækjendur þurfa að vera við góða heilsu og tilbúnir að leggja sig fram við að læra japönsku. Þar að auki þurfa þeir að vera tilbúnir til að leggja af stað, og koma til Japan milli 1. og 7. apríl 2009, eða tveimur vikum áður en önnin hefst (skv. háskólanum sem sótt er um).

Sendiráð Japans mun, í samvinnu við menntamálaráðuneytið á Íslandi, sjá um fyrsta úrtak umsækjenda. Lokaákvörðun verður svo tekin af menntamálaráðurneyti Japans (MEXT).

Umsóknir þurfa að berast með pósti til Sendiráðs Japans, Laugavegi 182, 105 Reykjavík, í síðasta lagi 15. júní 2008 en umsóknir og frekari leiðbeiningar má nálgast hjá sendiráðinu eða á:
http://www.studyjapan.go.jp/en/index.html

Þeir umsækjendur sem koma til greina munu þreyta próf í japönsku og ensku og verða boðaðir í viðtal til sendiráðsins í lok júní eða byrjun júlí 2008.

Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá:
Sendiráði Japans á Íslandi
Sími: 510-8600
Fax: 510-8605
tölvupóstur: [email protected] (íslensku)
[email protected] (ensku)



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum