Hoppa yfir valmynd
22. maí 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntamálaráðherra friðar sjö 20. aldar hús

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða eftirtalin hús, sem öll eru reist á 20. öld. Friðunin nær til ytra borðs húsanna.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða eftirtalin hús, sem öll eru reist á 20. öld. Friðunin nær til ytra borðs húsanna.

  • Lindargata 51, Franski spítalinn, var reistur árið 1902 og var eitt þriggja sjúkrahúsa franska spítalafélagsins á Íslandi.
  • Dyngjuvegur 8, Gunnarshús, heimili Gunnars Gunnarssonar rithöfundar og fjölskyldu hans, reist árið 1950. Húsið var teiknað af Hannesi Kr. Davíðssyni arkitekt.
  • Menntaskólinn v/Hamrahlíð, sem byggður var árið 1966 og teiknaður af Skarphéðni Jóhannssyni arkitekt.
  • Sjómannaskólinn v/Háteigsveg, var byggður á árunum 1942-45 og teiknaður af arkitektunum Sigurði Guðmundssyni og Eiríki Einarssyni. Það sem m.a. gerir bygginguna óvenjulega er að innsiglingarrviti Reykjavíkurhafnar er felldur inn í form hússins sem turn.
  • Sólheimar 5, sem reist var 1957-59 af Gunnari Hanssyni húsateiknara. Hann bjó sjálfur í húsinu með fjölskyldu sinni og er það gott dæmi um byggingarlist hans. Upphafleg hönnun húsins hefur varðveist að utan sem innan án breytinga.
  • Tómasarhagi 31, reist var á árunum 1953-54 og teiknað af Gísla Halldórssyni arkitekt. Þetta er talið eitt merkasta verk Gísla í listrænu tilliti.
  • Skriðuklaustur í Fljótsdal, sem Gunnar Gunnarsson skáld lét reisa árið 1939 og teiknað var af þýska arkitektinum Fritz Höger. Íbúðarhúsið að Skriðuklaustri er sérstæð með mikið listrænt og menningarsögulegt gildi og var heimili Gunnars Gunnarssonar skálds á árunum 1939-48.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum