Hoppa yfir valmynd
23. maí 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norrænir starfsmenntunarstyrkir

Menntamálaráðuneyti Danmerkur og Noregs veita á námsárinu 2008-2009 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum.

Menntamálaráðuneyti Danmerkur og Noregs veita á námsárinu 2008-2009 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi.

Fjárhæð styrks í Danmörku er 21.000 d.kr., Noregi 20.000 n.kr. Einnig er gert ráð fyrir að sams konar styrkir verði í boði til náms í Svíþjóð á árinu 2009.

Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 16. júní 2008.

Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og á vef ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum