Hoppa yfir valmynd
14. ágúst 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntaþing 12. september

Menntamálaráðherra efnir til Menntaþings föstudaginn 12. september 2008. Þingið verður haldið í Reykjavík og stendur frá kl. 9 til 16. Þátttaka í Menntaþinginu er ókeypis og öllum opin.

Menntamálaráðherra efnir til Menntaþings föstudaginn 12. september 2008. Þingið verður haldið í Reykjavík og stendur frá kl. 9 til 16. Þátttaka í Menntaþinginu er ókeypis og öllum opin.

Ný menntastefna
nymenntastefna

Þann 29. maí sl samþykkti Alþingi ný lög um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda. Til þess að skapa vettvang fyrir umræðu um hin nýju lög og framkvæmd þeirra hefur menntamálaráðherra ákveðið að efna til Menntaþings 2008 - málþings um nýja menntastefnu, sem haldið verður þann 12. september næstkomandi.

Kynningar og umræður á Menntaþinginu munu höfða til kennara, nemenda og skólastjórnenda auk foreldra og annarra sem áhuga hafa á menntamálum. Á þinginu verða fyrirlestrar sem varða nýja menntastefnu og veita yfirsýn yfir helstu þætti hennar auk málstofa um einstök málefni. Þarna mun því gefast gott tækifæri til að kynnast nýrri menntastefnu og ræða framkvæmd hennar.

Menntaþingið Haldið í Háskólabíói og Radisson SAS (Hótel Sögu) í Reykjavík. Þátttaka er ókeypis og öllum opin.

Dagskrá:

Tími

Efni

08:30-9:00

Móttaka ráðstefnugesta

09:00-09:50

Ný menntastefna

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra. Umræður

9:50- 10:10

Kaffi

10:10-11:10

Hlutverk kennarans á 21. öldinni

Fyrirlesari: Catherine Lewis Umræður

11:10-11:25

Kaffi

11:25-12:20

Framkvæmd nýrrar menntastefnu - Málstofur

Leikskóli
Grunnskóli
Framhaldsskóli

12:20-13:00

Hádegisverðarhlé

13:00-14:05

Ný menntastefna í alþjóðlegu samhengi

Fyrirlesari: Jens Bjornavold Umræður

14:05-14:30

Kaffi

14:30-15:30

Málstofur

  • Tengsl milli skólastiga
  • List- og verknám á öllum skólastigum Velferð nemandans
  • Mat og eftirlit með gæðum skólastarfs
  • Ísland í alþjóðlegu samhengi
  • Framhaldsskóli framtíðarinnar
  • Sólskinssögur úr skólastarfi
  • Skóli og samfélagið – tengsl milli heimila og skóla
  • Kennaramenntun í ljósi nýrrar menntastefnu

15:30-16:00

Ráðstefnuslit

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra

16:00-16:30

Léttar veitingar


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum