Hoppa yfir valmynd
15. ágúst 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Evrópskur tungumáladagur 26. september 2008

Menntamálaráðuneytið hvetur skóla, aðrar fræðslustofnanir og hagsmunaaðila til að minnast Evrópsks tungumáladags hinn 26. september 2008. Vakin er athygli á bæklingi með fjölmörgum hugmyndum að mögulegum verkefnum og aðgerðum á tungumáladeginum.
Evrópski tungumáladagurinn
evropski-tungumaladagurinn
  • Menntamálaráðuneytið hvetur skóla, aðrar fræðslustofnanir og hagsmunaaðila til að minnast Evrópsks tungumáladags hinn 26. september 2008 og vekja þannig með einhverjum hætti athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og símenntunar í tungumálum. Vakin er athygli á bæklingi með fjölmörgum hugmyndum að mögulegum verkefnum og aðgerðum á tungumáladeginum. Bæklinginn má nálgast á vef ráðuneytisins eða www.menntagatt.is. Þar er einnig að finna frekari upplýsingar um tungumáladaginn. Jafnframt er bent á vef Evrópuráðsins vegna tungumáladagsins. Í ráðuneytinu má einnig nálgast íslenska útgáfu veggspjalds frá Evrópuráðinu.

    Að frumkvæði Evrópuráðsins hefur tungumáladagsins verið minnst frá árinu 2001 með ýmsu móti í Evrópulöndum, þ.m.t. á Íslandi. Markmið Evrópska tungumáladagsins eru einkum eftirfarandi:

  • Vekja athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og fjölbreytts tungumálanáms til að auka fjöltyngi og skilning á ólíkri menningu þjóða
  • Stuðla að því að viðhalda fjölbreytileika tungumála og menningar í Evrópu
  • Hvetja til símenntunar í tungumálanámi, bæði innan skólakerfisins og utan þess. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur einnig ákveðið að árið 2008 sé helgað tungumálum og falið UNESCO að sjá um framkvæmdina. Slagorð ársins er: Tungumál skipta máli. Frekari upplýsingar um verkefnið eru á slóðinni:http://portal.unesco.org/en

Tengiliður við verkefnið í menntamálaráðuneytinu er Guðni Olgeirsson, sími 545 9500, netfang: [email protected] Þess er vænst að Evrópskur tungumáladagur 2008 hafi jákvæð áhrif á tungumálanám og tungumálakennslu og verði einstaklingum hvatning til símenntunar á því sviði.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum