Hoppa yfir valmynd
3. október 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kynningafundir um landið vegna nýrrar menntastefnu

Menntamálaráðherra mun á næstu vikum fara um landið og kynna nýja menntastefnu og ný lög um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda.

Menntathing
Menntathing

Menntamálaráðherra mun á næstu vikum fara um landið og kynna nýja menntastefnu og ný lög um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda. Fundaherferðin hófst með velheppnuðu Menntaþingi í Háskólabíói 12. september sl. Yfir 800 manns sóttu þingið, hlýddu á kynningar á nýrri stefnu og tóku þátt í líflegum umræðum í málstofum.

Næstu fundir verða haldnir á Austurlandi, þann 7. október í Menntaskólanum á Egilsstöðum og þann 8. október í Nýheimum á Höfn í Hornafirði frá kl. 20-22. Á fundunum mun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, kynna nýja menntastefnu og Guðni Olgeirsson, sérfræðingur í menntamálaráðuneyti kynnir nýja menntalöggjöf nánar. Að erindum loknum verða pallborðsumræður með málshefjendum ásamt Sölva Sveinssyni, sérfræðingi í menntamálaráðuneyti.

Fundarstjórar á fundunum verða Eiríkur Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar.

Fundirnir eru öllum opnir og vill menntamálaráðuneytið hvetja skólafólk, foreldra, nemendur og annað áhugafólk um skólamál til að mæta og ræða nýja menntalöggjöf sem býður upp á mörg og spennandi tækifæri fyrir íslenskt skólakerfi.

Í nýjum lögum um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda eru margar veigamiklar breytingar sem endurspegla þá stefnu að nemandinn sé í brennidepli í skólastarfinu, faglegt starf kennara verði eflt og áhrif og ábyrgð á námi færð til þeirra sem málið varðar mest. Dæmi um breytingar eru eftirfarandi:

  • Áhrif foreldra á starf í leikskólum aukin með stofnun foreldraráða.
  • Skólastjórar í leik- og grunnskólum bera nú aukna ábyrgð á samhæfingu sérfræðiþjónustu og gert er ráð fyrir að þjónustan fari í auknum mæli fram innan veggja í skólans.
  • Samræmd próf í 10. bekk grunnskóla verða felld niður í núverandi mynd en í staðinn tekin upp könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði að hausti í 10. bekk.
  • Veitt er heimild til samreksturs, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla
  • Framhaldsskólar fá aukið sjálfstæði til að móta námsframboð og gera tillögur um nýjar námsbrautir. Ekki er lengur miðað við fjórar bóknámsbrautir og starfsnám og bóknám verður jafngilt til stúdentsprófs.
  • Menntun kennara verður stórefld og gerð er krafa um að leik-, grunn- og framhaldsskólakennarar hafi lokið meistaragráðu.





Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum