Hoppa yfir valmynd
24. október 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2009

Innritun í dagskóla hefst 1. nóvember og lýkur 20. nóvember.

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2009 fer fram dagana 1. til 20. nóvember 2008 á skólavef menntamálaráðuneytis, http://www.menntagatt.is/. Einstakir skólar gætu verið með annan umsóknarfrest, upplýsingar um það eru á vefsíðu viðkomandi skóla.

  • Allar umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar. Sótt er um á netinu og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna
  • Nemendum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um.
  • Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt skólum til vara, sem og námsbraut og önnur þjónusta sem er í boði í einstökum skólum. Eftir að umsóknarfresti lýkur geta umsækjendur opnað umsóknir sínar aftur og fylgst með afgreiðslu þeirra.
  • Geti skóli ekki orðið við umsókn verður hún send í skóla sem nemandi valdi til vara. Þegar allar umsóknir hafa verið afgreiddar fá nemendur bréf með upplýsingum um afgreiðsluna. Nemendur þurfa að staðfesta veitta skólavist með greiðslu innritunargjalds.

Rafræn innritun auðveldar yfirsýn yfir eftirspurn nemenda eftir skólum og námsbrautum. Fyrr verður ljóst hverjar óskir nemenda eru og því auðveldara að bregðast við þeim. Þjónusta við nemendur verður betri og nýir möguleikar opnast til að tengja innritunina námsráðgjöf og öðrum þáttum skólastarfsins í grunnskólunum í samvinnu við framhaldsskólana. Innritun í nám í kvöldskóla, fjarnám og annað nám en í dagskóla verður með hefðbundnum hætti. Innritun fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa slíkt nám í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að hafa samband við viðkomandi skóla hyggist þeir stunda nám í kvöldskóla eða fjarnámi.

Upplýsingar um framhaldsskóla má finna á www.menntagatt.is.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum