Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntamálaráðherra kynnir nýja menntastefnu á Akureyri

Fundurinn verður haldinn í Menntaskólanum á Akureyri miðvikudaginn 5. nóvember frá kl. 20 - 22
Ný menntastefna
BANNER

Fundurinn verður haldinn í Menntaskólanum á Akureyri miðvikudaginn 5. nóvember frá kl. 20 - 22

Menntamálaráðherra heldur áfram kynningu um landið á nýrri menntastefnu og nýjum lögum um þrjú skólastig og menntun kennara. Fundaherferðin hófst með velheppnuðu Menntaþingi í Háskólabíói 12. september sem yfir 800 manns sóttu, hlýddu á kynningar á nýrri stefnu og tóku þátt í líflegum umræðum í málstofum.

Næsti fundur verður haldinn í Menntaskólanum á Akureyri miðvikudaginn 5. nóvember frá kl. 20-22. Á fundinum mun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, kynna nýja menntastefnu og Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneyti, kynnir nýja menntalöggjöf nánar. Sjöfn Þórðardóttir formaður Heimilis og Skóla fjallar um samvinnu skóla og nærsamfélags. Að erindum loknum verða pallborðsumræður með málshefjendum ásamt Guðna Olgeirssyni og Sigurði Sigursveinssyni, sérfræðingum í menntamálaráðuneyti. Fundarstjóri verður Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar.

Fundurinn er öllum opinn og vill menntamálaráðuneytið hvetja skólafólk, foreldra, nemendur og annað áhugafólk um skólamál til að mæta og ræða nýja menntalöggjöf sem býður upp á mörg og spennandi tækifæri fyrir íslenskt skólakerfi.

Í nýjum lögum um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda eru margar veigamiklar breytingar sem endurspegla þá stefnu að nemandinn sé í brennidepli í skólastarfinu, faglegt starf kennara verði eflt og áhrif og ábyrgð á námi færð til þeirra sem málið varðar mest. Dæmi um breytingar eru eftirfarandi:

  • Áhrif foreldra á starf í leikskólum aukin með stofnun foreldraráða.
  • Skólastjórar í leik- og grunnskólum bera nú aukna ábyrgð á samhæfingu sérfræðiþjónustu og gert er ráð fyrir að þjónustan fari í auknum mæli fram innan veggja skólans.
  • Samræmd próf í 10. bekk grunnskóla verða felld niður í núverandi mynd en í staðinn tekin upp könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði að hausti í 10. bekk.
  • Veitt er heimild til samreksturs, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla.
  • Framhaldsskólar fá aukið sjálfstæði til að móta námsframboð og gera tillögur um nýjar námsbrautir. Ekki er lengur miðað við fjórar bóknámsbrautir og starfsnám og bóknám verður jafngilt til stúdentsprófs.
  • Menntun kennara verður stórefld og gerð er krafa um að leik-, grunn- og framhaldsskólakennarar hafi lokið meistaragráðu.

Nánari upplýsingar um nýja menntastefnu og dagskrá haustsins eru á www.nymenntastefna.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum