Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntamálaráðherra kynnir nýja menntastefnu í Vestmannaeyjum

Fundurinn verður haldinn í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum mánudaginn 17. nóvember kl. 16.15.

Menntamálaráðherra kynnir nýja menntastefnu í Vestmannaeyjum
Menntamálaráðherra mun á næstu vikum fara um landið og kynna nýja menntastefnu og ný lög um þrjú skólastig og menntun kennara. Fundaherferðin hófst með velheppnuðu Menntaþingi í Háskólabíói 12. september sem yfir 800 manns sóttu, hlýddu á kynningar á nýrri stefnu og tóku þátt í líflegum umræðum í málstofum.

Næsti fundur verður haldinn í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum mánudaginn 17. nóvember kl. 16.15. Á fundinum mun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, kynna nýja menntastefnu. Í kjölfarið verða pallborðsumræður með menntamálaráðherra ásamt Arnóri Guðmundssyni, skrifstofustjóra í menntamálaráðuneyti og Guðna Olgeirssyni og Sigurði Sigursveinssyni, sérfræðingum í menntamálaráðuneyti. Fundarstjóri verður Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.

Fundurinn er öllum opinn og vill menntamálaráðuneytið hvetja skólafólk, foreldra, nemendur og annað áhugafólk um skólamál til að mæta og ræða nýja menntalöggjöf sem býður upp á mörg og spennandi tækifæri fyrir íslenskt skólakerfi.
Í nýjum lögum um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda eru margar veigamiklar breytingar sem endurspegla þá stefnu að nemandinn sé í brennidepli í skólastarfinu, faglegt starf kennara verði eflt og áhrif og ábyrgð á námi færð til þeirra sem málið varðar mest. Dæmi um breytingar eru eftirfarandi:

  • Áhrif foreldra á starf í leikskólum aukin með stofnun foreldraráða.
  • Skólastjórar í leik- og grunnskólum bera nú aukna ábyrgð á samhæfingu sérfræðiþjónustu og gert er ráð fyrir að þjónustan fari í auknum mæli fram innan veggja í skólans.
  • Samræmd próf í 10. bekk grunnskóla verða felld niður í núverandi mynd en í staðinn tekin upp könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði að hausti í 10. bekk.
  • Veitt er heimild til samreksturs, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla
  • Framhaldsskólar fá aukið sjálfstæði til að móta námsframboð og gera tillögur um nýjar námsbrautir. Ekki er lengur miðað við fjórar bóknámsbrautir og starfsnám og bóknám verður jafngilt til stúdentsprófs.
  • Menntun kennara verður stórefld og gerð er krafa um að leik-, grunn- og framhaldsskólakennarar hafi lokið meistaragráðu.




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum