Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nýir fulltrúar menntamálaráðherra og fjármálaráðherra í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna

Menntamálaráðherra hefur skipað eftirtalda nýja fulltrúa menntamálaráðherra og fjármálaráðherra í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til næstu tveggja ára frá 9. febrúar 2009 að telja:

Haraldur Guðni Eiðsson, formaður, án tilnefningar.
Varamaður hans er Halldór Grönvold.

Auður Lilja Erlingsdóttir, varaformaður, án tilnefningar.
Varamaður hennar er Sæunn Stefánsdóttir.

Finnur Friðriksson, án tilnefningar.
Varamaður hans er Silja Bára Ómarsdóttir.

Eyja Margrét Brynjarsdóttir, tilnefnd af fjármálaráðherra.
Varamaður hennar er Sigurður Haraldsson.

Áfram sitja í stjórn lánasjóðsins:

Bergur Sigurjónsson, tilnefndur af Stúdentaráði Háskóla Íslands.
Varamaður hans er Agnar Burgess.

Ásgeir Þórarinn Ingvarsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra námsmanna erlendis.
Varamaður hans er Hjördís Jónsdóttir.

Rakel Lind Hauksdóttir, tilnefnd af Bandalagi íslenskra námsmanna.
Varamaður hennar er Ása Dóra Finnbogadóttir.

Sindri Rafn Þrastarson, tilnefndur af Sambandi íslenskra framhaldsskólanema.
Varamaður hans er Sindri Snær Einarsson.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum