Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Íþróttavakning framhaldsskóla 2009

Lokahátíð Íþróttavakningar framhaldsskóla verður haldin á morgun, laugardaginn 4. apríl, kl. 14:30 í Smáranum og Fífunni Kópavogi.

Lokahátíð Íþróttavakningar framhaldsskóla verður haldin á morgun, laugardaginn 4. apríl, kl. 14:30 í Smáranum og Fífunni Kópavogi. Þar fæst úr því skorið hvaða framhaldsskóli hlýtur titilinn: Íþróttaskóli ársins 2009.

Úrslitadagurinn er endapunktur á heilsueflingarátaki sem hefur staðið yfir í allan vetur og snýst um að hvetja nemendur til aukinnar hreyfingar og efla með því forvarnir í framhaldsskólum. Markmiðið er að hvetja framhaldsskólanemendur til að hreyfa sig meira og alls hafa um 8000 nemendur víðs vegar af landinu tekið þátt í átakinu, sem verður árlegt upp frá þessu.

Ráðherrar mennta- og heilbrigðismála setja hátíðina en síðan verður hitað upp í LazerTag og hreystibraut þar sem nemendur keppa við kennara og ráðherrarnir etja kappi í hreystibrautinni. Í kjölfar þess verður keppt í fótbolta, blaki, sundi og frjálsum íþróttum.

Hljómsveitin Dikta spilar og plötusnúður verður á staðnum og sér um fjörið.

Allar nánari upplýsingar má finna hér

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum