Hoppa yfir valmynd
5. júní 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntaskólinn að Laugarvatni er Íþróttaskóli ársins 2009

,,Íþróttaskóli ársins 2009", úr röðum framhaldsskóla, var í fyrsta skiptið krýndur á útskriftarhátíð Menntaskólans að Laugarvatni, laugardaginn 30. maí síðastliðinn.
Íþróttavakning í framhaldsskólum
IMG_2638

,,Íþróttaskóli ársins 2009", úr röðum framhaldsskóla, var í fyrsta skiptið krýndur á útskriftarhátíð Menntaskólans að Laugarvatni, laugardaginn 30. maí síðastliðinn. Þórólfur Þórlindsson, fyrrverandi forstjóri Lýðheilsustöðvar, afhenti fulltrúum nemenda veglegan bikar í tilefni af þessum góða árangri skólans.

Íþróttavakning framhaldsskólanna er eitt af nokkrum verkefnum sem stýrihópur um Heilsueflingu og forvarnir í framhaldsskólum (HOFF) setti á laggirnar haustið 2008. Menntaskólinn að Laugarvatni bar sigur úr býtum í þessu átaki eftir spennandi keppni, sem stóð yfir í allan vetur.

Tilgangur verkefnisins er fyrst og fremst sá að fá sem flesta framhaldsskólanema til að hreyfa sig á hverjum degi og þar með hvetja nemendur til þess að auka vægi hreyfingar í daglegu lífi sem leiðir svo aftur til bættrar heilsu nemenda og meiri árangurs í lífi og starfi. Aðstandendur HOFF verkefnisins eru menntamálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Lýðheilsustöð og félög framhaldsskólanema, SÍF og HÍF.

Átakið í vetur var tvíþætt. Annars vegar var skipulögð almenn hreyfing í skólunum með það að markmiði að fá sem flesta nemendur til að hreyfa sig og hins vegar var keppt í nokkrum hefðbundum íþróttagreinum, s.s. blaki, körfubolta, innanhússfótbolta, frjálsum íþróttum og sundi, á milli framhaldsskólanna. Alls tóku um 8500 nemendur frá 28 framhaldsskólum af 30 þátt í íþróttavakningunni sem verður árlegur viðburður í starfi framhaldsskólanna upp frá þessu.

Eins og áður sagði sigraði Menntaskólinn að Laugarvatni, bæði í keppnishlutanum og almenna hlutanum. Röð fimm efstu skólanna er eftirfarandi:

Skóli

Stig úr almenna hluta

Stig úr keppnishluta Samanlagt

Menntaskólinn að Laugarvatni

160

70 238

Fjölbrautaskóli Snæfellinga

140

53 193

 Framhaldskólinn að Laugum

126 

41 167

Menntaskólinn í Reykjavík

137

0 137

Borgarholtsskóli

66

56 124
  • Frekari upplýsingar um frammistöðu framhaldsskólanna og myndir má finna á vef vakningarinnar.




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum