Hoppa yfir valmynd
22. júní 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norræna skólahlaupið 2008

Á skólaárinu 2008-2009 lögðu nemendur að baki vegalengd sem samtals samsvarar hlaupi 15,85 sinnum hringinn í kringum landið.

Á skólaárinu 2008-2009 lögðu nemendur að baki vegalengd sem samtals samsvarar hlaupi 15,85 sinnum hringinn í kringum landið.
Norræna skólahlaupið fór fram í 25. sinn hér á landi á tímabilinu 15. september 2008 – 31. maí 2009. Alls hlupu 5661 nemendur úr 33 grunn- og framhaldsskólum og lögðu samtals að baki 21,227,5 km. Til samanburðar má geta þess að þessi vegalengd sem nemendurnir hlupu samsvarar því að hlaupið hafi verið 15,85 sinnum kringum landið eftir hringveginum.

  • Með norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur, kennara og annað starfslið skólanna til þess að æfa hlaup og auka við hreyfingu sína. Lögð er áhersla á að kynna nauðsyn þess að hreyfa sig og reyna á líkama sinn á ýmsan hátt og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Keppt er að því fyrst og fremst að sem flestir, helst allir, verði með í hlaupinu í hverjum skóla. Að þessu sinni hlupu allir nemendur níu skóla.
  • Allir þátttakendur fengu sérstaka viðurkenningu og skólarnir hver fyrir sig viðurkenningarskjal sem Mjólkursamsalan veitti. Umsjón með norræna skólahlaupinu hefur íþrótta- og æskulýðsdeild menntamálaráðuneytis í samvinnu við Íþróttakennarafélag Íslands.

Á næsta skólaári mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hafa umsjón með Norræna skólahlaupinu og vill menntamálaráðuneytið þakka fyrir góða samvinnu á liðnum árum og vonum að sem flestir nemendur haldi áfram að taka þátt í þessu skemmtilega skólahlaupi.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum