Hoppa yfir valmynd
30. september 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skipun þjóðleikhússtjóra

Menntamálaráðherra hefur skipað Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóra til næstu fimm ára, frá og með 1. janúar 2010.
Þjóðleikhúsið
Tjodleikhusid

Menntamálaráðherra hefur skipað Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóra til næstu fimm ára, frá og með 1. janúar 2010. Tinna hefur gegnt stöðu þjóðleikhússtjóra frá árinu 2004. Við ákvörðunina var bæði tekið tillit til álits þjóðleikhúsráðs og viðtala við umsækjendur.

Við skipun Tinnu Gunnlaugsdóttur er litið til framtíðarsýnar hennar og reynslu af stjórnun og daglegum rekstri. Þegar horft var sérstaklega til framtíðarsýnar umsækjenda í ljósi fyrirsjáanlegs niðurskurðar voru hugmyndir Tinnu mjög vel mótaðar. Rekstur Þjóðleikhússins hefur á síðustu misserum verið aðlagaður mjög að fjárlagaramma og eftirlit og áætlanagerð verið efld.

Álit þjóðleikhúsráðs var birt ráðherra 17. ágúst sl. Í álitinu kom fram að allir umsækjendur væru hæfir en tveir umsækjendur, Tinna Gunnlaugsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir, væru mjög vel hæfir. Eftir viðtöl þriggja starfsmanna menntamálaráðuneytisins undir stjórn sérfræðings í mannauðsstjórnun voru þrjár metnar hæfastar: Kolbrún Halldórsdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum