Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Breytingar á yfirstjórn mennta- og menningarmálaráðuneytis

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur í dag fallist á ósk fjármálaráðherra um að Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, flytjist í embætti ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu frá og með 1. nóvember 2009.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur í dag fallist á ósk fjármálaráðherra um að Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, flytjist í embætti ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu frá og með 1. nóvember 2009. Embætti ráðuneytisstjóra í mennta- menningarmálaráðuneyti verður því auglýst laust til umsóknar og er við það miðað að unnt verði að skipa í embættið fyrir nóvemberlok. Fram að því mun Þórhallur Vilhjálmsson, skrifstofustjóri lögfræðisviðs, sinna verkefnum ráðuneytisstjóra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum