Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Undirritað samkomulag um listaverk í eigu Arion banka

Í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í dag klukkan 16:30 verður undirritað samkomulag mennta- og menningarmálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis annars vegar og Arion banka hins vegar.

Í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í dag klukkan 16:30 verður undirritað samkomulag mennta- og menningarmálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis annars vegar og Arion banka hins vegar. Samkomulagið tryggir Listasafni Íslands forgang að þeim verkum í listaverkasafni bankans sem eru talin hafa mikla þýðingu fyrir íslenska listasögu, og mun bankinn færa listasafninu tvö þessara verka að gjöf að lokinni undirritun.

Ekki er um blaðamannafund að ræða en fjölmiðlum engu að síður er velkomið að senda ljósmyndara á staðinn.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum