Menningarlandið 2010 - Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, í dag föstudaginn 30. apríl
Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 - Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, í dag föstudaginn 30. apríl kl. 12:30-16:45.
Menningarþingið verður sent út í vefútsendingu á vef ráðuneytisins.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, í dag föstudaginn 30. apríl kl. 12:30-16:45.
Menningarþingið verður sent út í vefútsendingu á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Á þinginu verður kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála.
Tilgangur þingsins er að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem gætu nýst í áframhaldandi vinnu við mótun menningarstefnu til framtíðar. Einnig verður kynnt sóknaráætlun stjórnvalda í menningarmálum og nýleg menningarneyslukönnun.
Dagskrá menningarþingsins:
12:30 Skráning
13:00 Setning; Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
13:10 Framsöguerindi:
- Kynning á skýrslu um núverandi menningarstefnu. Dr. Haukur F. Hannesson listrekstrarfræðingur
-
Kynning á menningarmálum í Sóknaráætlun 20/20. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
-
Kynning á menningarneyslukönnun. Gunnar J. Árnason sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti
14:00 Starf vinnuhópa. Á þinginu verður unnið í vinnuhópum með fjóra málaflokka sem eru:
-
listir
- menningararfur og söfn
- fjölmiðlar
- íþrótta- og æskulýðsmál
16:00 Samantekt
Ráðstefnustjóri er Ásta Magnúsdótti, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti