Hoppa yfir valmynd
5. maí 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til grunnnáms í Japan á háskólastigi

Stjórnvöld í Japan ætla að veita einum íslenskum ríkisborgara styrk til grunnnáms á háskólastigi.

Stjórnvöld í Japan ætla að veita einum íslenskum ríkisborgara styrk til grunnnáms á háskólastigi. Áhugasamir sem fæddir eru á tímabilinu frá 2. apríl 1989 til 1. apríl 1994 og hafa útskrifast úr framhaldsskóla fyrir mars 2011 teljast hæfir til að sækja um. Styrkþegar fá eins árs undirbúningskennslu í japönsku, sem er innifalin í styrknum.

MEXT, menntamálaráðuneyti Japans mun greiða fyrir flugferðir fram og til baka, skólagjöld og námsstyrk til fimm ára frá og með apríl 2011. Samkvæmt fjárhagsárinu 2010 munu mánaðarlegar styrkgreiðslur vera 125.000 yen. Upphæðir kunna að vera breytilegar.

Námsleiðir sem koma meðal annars til greina eru:

  • Félags- og hugvísindi

Félags- og hugvísindi A: Lögfræði, stjórnmálafræði, uppeldisfræði, félagsfræði, bókmenntir, sagnfræði, japönsk fræði o.fl.
Félags- og hugvísindi B: Hagfræði og viðskiptafræði.

  • Náttúruvísindi

Náttúruvísindi A: Raunvísindi, rafmagnsverkfræði, vélaverkfræði, byggingaverkfræði, arkitektúr, efnafræði, o.fl.
Náttúruvísindi B: Umhverfisfræði, lyfjafræði og líffræði.
Náttúruvísindi C: Læknisfræði og tannlækningar.
Sjá nánari upplýsingar í leiðarvísi 1. FIELDS OF STUDY.

Umsækjendur þurfa að vera við góða heilsu og kunna eitthvað í japönsku eða vera tilbúnir að leggja sig fram við að læra málið. Ætlast er til þess að styrkþegar verði komnir til Japans á tímabilinu 1. - 7. apríl 2011.

Sendiráð Japans á Íslandi mun sjá um fara yfir umskóknirnar. Lokaákvörðun verður tekin af MEXT, menntamálaráðurneyti Japans.

  • Umsóknir þurfa að berast sendiráði Japans eigi síðar en 25. júní 2010..

Þeir umsækjendur sem koma til greina munu þreyta próf í ensku, stærðfræði og japönsku. Jafnframt verða þeir boðaðir í viðtal í sendiráðið í júlí 2010.

Umsóknareyðublöð og frekari leiðbeiningar má nálgast á vefsíðunni: http://www.studyjapan.go.jp/en/toj/toj0307e.html - 1 Vinsamlegast lesið greinina “Undergraduate students”.

Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá:

Sendiráði Japans á Íslandi

  • Laugavegi 182, 105 Reykjavík
  • Sími: 510 8600
  • Fax : 510 8605
  • Tölvupóstur: [email protected]




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum