Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2011

Innritun í dagskóla er til 26. nóvember 2010 á skólavef mennta- og menningarmálaráðuneytis, menntagatt.is.

innritun
innritun

Innritun í dagskóla er til 26. nóvember 2010 á skólavef mennta- og menningarmálaráðuneytis, www.menntagatt.is. Allar umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar. Sótt er um á netinu og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna. Einstakir skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartímabil og eru upplýsingar um það á vefsíðu viðkomandi skóla.
Umsækjendur þurfa að hafa tiltækan veflykil sem hægt er að sækja um á menntagatt.is. Nemendum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um.
Við útfyllingu umsóknar er hægt að velja tvo framhaldsskóla, sem og námsbraut og aðra þjónustu sem er í boði í einstökum skólum.
Innritun í nám í kvöldskóla, fjarnám og annað nám en í dagskóla fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa slíkt nám í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að hafa samband við viðkomandi skóla hyggist þeir stunda nám í kvöldskóla eða fjarnámi. Upplýsingar um framhaldsskóla má finna á menntagatt.is.

Nánari upplýsingar um innritun er hægt að fá hjá framhaldsskólunum eða með því að senda fyrirspurn á netfangið: [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum