Hoppa yfir valmynd
10. desember 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Opnun íslenskrar heimasíðu um heimsminjar

Heimsminjanefnd Íslands hefur opnað heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO og framkvæmd hans hér á landi.

Heimasíða heimsminjanefndar Íslands

Heimsminjanefnd Íslands hefur opnað heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO og framkvæmd hans hér á landi. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnuðu síðuna formlega í gær.

Heimsminjasamningurinn miðar að því að vernda bæði menningarminjar og náttúruminjar sem eru einstakar í heiminum. Á heimasíðunni má finna fréttir af samningnum, upplýsingar um aðild Íslands að honum og um Þingvelli og Surtsey, en það eru þeir staðir á Íslandi sem eru á heimsminjaskrá UNESCO.

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarráðherra benti í ávarpi sínu á nauðsyn þess að gefa Íslendingum kost á því að kynna sér málefni heimsminja frá íslensku sjónarhorni þar sem starf tengt heimsminjamálum hefur mikla þýðingu fyrir Ísland - bæði heima og á alþjóðavísu og nokkuð hefði borið á skorti á gagnlegum upplýsingum um þetta málefni. Í máli Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra kom m.a. fram að samstarf umhverfisráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis við undirbúning aðildar og framkvæmd samningsins hefði verið til fyrirmyndar.

Nú er í undirbúningi alþjóðleg tilnefning víkingaminjastaða sem Ísland er í forsvari fyrir. Einnig er unnið að gerð nýrrar skrár yfir þá staði sem Ísland gæti hugsanlega tilnefnt á næstu árum, m.a. Vatnajökulsþjóðgarð sem náttúruminjar og íslenskar torfbyggingar sem menningarminjar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum