Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Mælt fyrir frumvarpi um stöðu íslenskrar tungu og táknmáls

Mennta- og menningarmálaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi til laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls.

katrin_jakobsdottir_vef
katrin_jakobsdottir_vef

Mennta- og menningarmálaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi til laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. Í kjölfar þess fór fram umræða þar sem þingmenn lýstu yfir ánægju sinni með frumvarpið og var því síðan vísað til umfjöllunar í menntamálanefnd Alþingis.
Markmið frumvarpsins er að festa í lög stöðu íslenskrar tungu, mæla fyrir um varðveislu hennar, þróun og nothæfni og aðgengi manna. Jafnframt gerir frumvarpið ráð fyrir að íslenskt táknmál verði viðurkennt í lögum sem fyrsta mál þess hluta heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra og afkomenda þeirra sem reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Er lagt til að íslenska ríkið hlúi að íslenska táknmálinu og styðji. Mælt er fyrir um rétt þeirra sem þörf hafa fyrir táknmál að þeir skuli eiga þess kost að læra, tileinka sér og nota íslenska táknmálið frá máltökualdri eða frá þeim tíma sem heyrnarleysi, heyrnarskerðing eða daufblinda kemur fram síðar á ævinni.
Einnig er mælt fyrir um hvernig lögunum skuli framfylgt og hverjir beri þá skyldu. Þá eru fyrirmæli um notkun íslenskrar tungu innan stjórnkerfis ríkisins, Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum