Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga rann út mánudaginn 25. apríl sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fjórar umsóknir um stöðuna, frá einni konu og  þremur körlum.

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga rann út mánudaginn 25. apríl sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fjórar umsóknir um stöðuna, frá einni konu og  þremur körlum. Umsækjendur eru:

  • Geir Hólmarsson, framhaldsskólakennari,
  • Jóhannes Ágústsson, fyrrverandi skólastjóri,
  • Jón Eggert Bragason, settur skólameistari og
  • Lind Völundardóttir, framhaldsskólakennari.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum