Hoppa yfir valmynd
8. júní 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Landsbyggð tækifæranna - Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni

Miðvikudaginn 8. júní kl. 13:00 – 17:00 verður haldin ráðstefnan Landsbyggð tækifæranna - Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni á Grand Hótel

landsbyggð tækifæranna
landsbyggð tækifæranna

Miðvikudaginn 8. júní  kl. 13:00 – 17:00 verður haldin ráðstefnan Landsbyggð tækifæranna - Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni á  Grand Hótel, Sigtúni 38, Reykjavík (Háteigur A, 4 hæð).

Tilefni ráðstefnunnar er skýrsla mennta- og menningarmálráðuneytis um Þekkingarsetur á Íslandi og nú er ætlunin að móta áframhald þess verkefnis m.a. í tengslum við áherslur Vísinda- og tækniráðs og sóknaráætlanir landshluta (Ísland 2020).

Á ráðstefnunni verður fjallað um mikilvægi og tækifæri þekkingar- og fræðastarfs á landsbyggðinni og tengsl þess við rannsókna- og háskólasamfélagið á höfuðborgarsvæðinu.

Meðal viðfangsefna ráðstefnunnar er að skýra umfang og fjölbreytileika í starfsemi þekkingarsetra víða um land með áherslu á þau tækifæri sem þar liggja. Aukið samstarf þekkingarsetra bæði svæðisbundið og á landsvísu er líklegt til að skila auknum tækifærum til svæðisbundinnar þróunar á Íslandi.Á ráðstefnunni verða 10 stuttir fyrirlestrar og umræður.


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum