Hoppa yfir valmynd
3. október 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrktarsamningur við Kvikmyndaskóla Íslands

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert styrktarsamning við Kvikmyndaskóla Íslands. Forsvarsmenn skólans hafa tilkynnt ráðuneytinu að þegar í stað verði hafist handa við að undirbúa skólahald þannig að það megi hefjast sem fyrst og að nemendum og starfsmönnum skólans verði kynnt hvernig að því verður staðið.

Fréttatilkynning nr. 26/2011

Samningur ráðuneytisins við skólann gildir til 31. júlí 2012 með möguleika á framlengingu til 31. desember 2012. Samningurinn gerir ráð fyrir að rekstur skólans verði styrktur með allt að 46,2 m.kr. framlagi úr ríkissjóði til ársloka 2011 og með allt að 56,4 m.kr. framlagi árið 2012. Samningurinn er með fyrirvara um að fjárhagsleg endurskipulagning á rekstri skólans gangi eftir þannig að hann uppfylli skilyrði fyrir viðurkenningu sem einkaskóli á framhaldsskólastigi fyrir 15. nóvember 2011. Þá er einnig kveðið á um að eigi síðar en 15. október 2011 gefi fulltrúar nemenda, fulltrúar kennara og stjórn Kvikmyndaskóla Íslands út sameiginlega yfirlýsingu um að sátt ríki á milli aðila um starf og stjórnun skólans skólaárið 2011 til 2012.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur hafið vinnu við stefnumótun í kvikmyndanámi. Í þeirri vinnu verður haft samráð við fagfólk í kvimyndagerð og menntamálum auk hagsmunaaðila. Áætlað er niðurstaða liggi fyrir í janúar 2012.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum