Hoppa yfir valmynd
4. janúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nýr þjónustusamningur við Háskólann í Reykjavík undirritaður

Þann 29. desember sl. skrifuðu Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, undir þjónustusamning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára.

Samningur
Samningur

Þann 29. desember sl. skrifuðu Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, undir þjónustusamning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur undanfarna mánuði unnið að gerð nýrra samninga fyrir háskólastigið í heild sinni, í nánu samstarfi við háskólana. Samningurinn við Háskólann í Reykjavík er sá fyrsti í röðinni en skrifað verður undir samninga við Háskólann á Bifröst á næstu dögum, þá Listaháskóla Íslands  áður en röðin kemur að opinberu háskólunum. Stefnt er að því að ljúka samningagerð við alla háskólana fyrir vorið.

Sú nýbreytni er nú höfð að leiðarljósi við gerða þjónustusamninga fyrir háskólastigið að hverjum samningi fylgir viðauki þar sem starfsemi skólanna er skilgreind nánar. Viðaukinn er afrakstur náins samstarfs ráðuneytis og skólanna. Skilgreindir hafa verið ákveðnir samstarfsferlar á milli viðkomandi skóla og ráðuneytis og verður viðaukinn til endurskoðunar ár hvert.

Markmiðið með hinu nýja samningaferli er að auka gagnsæi og eftirlit með rekstri skólanna ásamt því að regluleg endurskoðun viðauka samningsins gerir skólanum og ráðuneyti kleyft að bregðast jafnóðum við þjóðfélagsbreytingum og sníða rekstur skólanna og háskólastigins í landinu að þörfum þjóðfélagsins á hverjum tíma.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum