Hoppa yfir valmynd
6. september 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti þjóðskjalavarðar Þjóðskjalasafns Íslands

Umsóknarfrestur um stöðu þjóðskjalavarðar Þjóðskjalasafns Íslands rann út mánudaginn 3. september sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust níu umsóknir um stöðuna, þar af frá fjórum konum og fimm körlum.

Umsóknarfrestur um stöðu þjóðskjalavarðar Þjóðskjalasafns Íslands rann út mánudaginn 3. september sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust níu umsóknir um stöðuna, þar af frá fjórum konum og fimm körlum. Umsækjendur eru:

  • Ásgerður Kjartansdóttir, ráðgjafi,
  • Brynja Björk Birgisdóttir, sérfræðingur,
  • Einar Hreinsson, sérfræðingur,
  • Eiríkur G. Guðmundsson, settur þjóðskjalavörður,
  • Hrafn Sveinbjarnarson, héraðsskjalavörður,
  • Jóna Símonía Bjarnadóttir, forstöðumaður,
  • Njörður Sigurðsson, sviðsstjóri,
  • Svanhildur Bogadóttir, borgarskjalavörður og
  • Þorsteinn Tryggvi Másson, héraðsskjalavörður.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. nóvember nk., að fenginni umsögn stjórnarnefndar safnsins, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga um Þjóðskjalasafn Íslands, nr. 66/1985 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996,  með síðari breytingum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum