Hoppa yfir valmynd
21. september 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stefna um kvikmyndamenntun á Íslandi

Stefna um kvikmyndamenntun á Íslandi var samþykkt á fundi ríkisstjórnar í dag. Mennta- og menningarmálaráðherra mun í framhaldi af því vinna að innleiðingu hennar í samstarfi við hagsmunaaðila.

Stefna um kvikmyndamenntun á Íslandi var samþykkt á fundi ríkisstjórnar í dag. Mennta- og menningarmálaráðherra mun í framhaldi af því vinna að innleiðingu hennar í samstarfi við hagsmunaaðila.

Stefnan er byggð á tillögum stýrihóps mennta- og menningarmálaráðherra um stefnmótun í kvikmyndamenntun á Íslandi sem sett er fram í skýrslu hópsins. Við vinnu sína lagði hópurinn áherslu á samstarf og samráð við skóla og hagsmunaaðila til að samhæfa ólík sjónarmið varðandi uppbyggingu náms og tengja það þörfum atvinnulífs og uppbyggingu kvikmyndagerðar á Íslandi. Stýrihópnum til ráðgjafar voru Henning Camre, forstöðumaður Think Tank on European Film and Film Policy og fyrrverandi skólastjóri Den Danske Filmskole og National Film and Television School í Englandi og Vladan Nikolic, prófessor við kvikmyndadeild The New School (Parsons) í New York og kennari við kvikmyndadeild New York University.

Í skýrslunni er fjallað um stöðu náms í kvikmyndagerð á Íslandi, námstækifæri erlendis og gerðar tillögur að framtíðarskipulagi. Stýrihópurinn leggur til að kvikmyndamenntun á Íslandi verði skipt í fjögur þrep:

  1. Kvikmynda- og fjölmiðlalæsi, kennt á grunnskólastigi.
  2. Almennt kvikmyndanám á framhaldsskólastigi.
  3. Sérhæfing á framhaldsskólastigi í stoðhlutverkum kvikmyndagreinarinnar, svo sem hljóð, hár, förðun, tölvuvinnsla, ljós/rafvirkjun, búningar, leikmyndagerð o.s.frv.
  4. Sérhæfing í kvikmyndagerð á BA-stigi. Áhersla lögð á listrænan grunn og markmiðið að útskrifa leiðandi kvikmyndagerðarmenn á sviðum leikstjórnar, handritsgerðar, kvikmyndatöku, klippingar, hljóðs og framleiðslu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum