Umsækjendur um stöðu forstöðumanns Minjastofnunar Íslands
Umsóknarfrestur um stöðu forstöðumanns Minjastofnunar Íslands rann út mánudaginn 26. október sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust 13 umsóknir um stöðuna, þar af frá níu konum og fjórum körlum.
Umsækjendur eru:
- Agnes Stefánsdóttir, deildarstjóri
- Ásgeir Þórhallsson, skattaendurskoðandi
- Brynja Björk Birgisdóttir, sérfræðingur
- Hanna Lára Steinsson, félagsráðgjafi
- Hilda Kristjánsdóttir
- Jón Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri
- Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður
- Margrét Hermanns Auðardóttir
- Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður
- Ragnheiður Traustadóttir, stjórnandi
- Una Strand Viðarsdóttir, kennari
- Vala Björg Garðarsdóttir
- Þór Hjaltalín, minjavörður
Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá og með 1. janúar 2013, sbr. 12. gr. laga nr. 80/2012 og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.