Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samstaða kynslóða

Grein eftir Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra  og Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir
Samstaða kynslóða

Æskan er dýrmæt. Þá er grunnurinn lagður að því sem koma skal í lífi okkar hvers og eins. Eitt af mikilvægustu verkefnum kjörinna fulltrúa í lýðræðissamfélagi - hvort sem er hjá ríki eða sveitarfélögum - er að sjá börnum fyrir öruggum aðstæðum og nægum tækifærum til að þroska hæfileika sína.

Á Íslandi hefur nánast ríkt þverpólitísk sátt um þetta grundvallarverkefni. Mikilvægt er að svo verði áfram, svo menntakerfið geti tryggt jöfnuð á milli barna, óháð efnahag foreldra þeirra. Aukinn jöfnuður er ein besta leiðin til að auka velsæld og hamingju í samfélaginu, en allt þetta hljótum við að vilja sem veganesti fyrir afkomendur okkar.

Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst 12. ágúst alþjóðlegan dag æskunnar og þetta árið er sjónum beint að samstöðu ólíkra kynslóða um betri heim. Samtalið þeirra á milli er mikilvægt og er ástæða til að brýna okkur til að hlusta á raddir komandi kynslóða - að vinna með æskunni, fyrir æskuna.

Mörg stærstu vandamál samtímans eru þess eðlis að þau munu lenda með auknum þunga á komandi kynslóðum. Loftslagsbreytingar af manna völdum, aukinn ágangur á auðlindir jarðar, ósjálfbær neysla og lifnaðarhættir - allt eru þetta dæmi þess að þær kynslóðir sem halda um stjórnartaumana taka ótæpilega að láni frá komandi kynslóðum. Það er mikilvægt að horfast í augu við þessar skuldir og sporna við óhófi.

Nýjum námskrám er meðal annars ætlað að gera komandi kynslóðir betur í stakk búnar til að takast á við þær miklu áskoranir sem framundan eru. Aukin áhersla á gagnrýna hugsun og lýðræði í öllu skólastarfi mun skila virkum og hæfum þátttakendum í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi. Menntun til sjálfbærni mun rækta með einstaklingum getuna til að hugsa um samspil umhverfis, efnahags, samfélags og velferðar – þætti sem þurfa að vera í jafnvægi við ákvörðunartöku.

Okkur er mikilvægt að hugsa um þær kynslóðir sem erfa munu landið þegar við tökum ákvarðanir, svo við getum verið stolt af því samfélagi sem við skilum í hendur þeirra. Umfram allt verðum við að gefa okkur tóm til að hlusta á æskuna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum