Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skapandi til framtíðar

Fyrir tveimur árum voru kynntar niðurstöður rannsóknar á efnahagslegum áhrifum skapandi greina sem opnuðu augu margra fyrir efnahagslegu mikilvægi þeirra.
Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir

Fyrir tveimur árum voru kynntar niðurstöður rannsóknar á efnahagslegum áhrifum skapandi greina sem opnuðu augu margra fyrir efnahagslegu mikilvægi þeirra. Með nýlegri skýrslu um starfsumhverfi þeirra hefur aðkoma stjórnvalda að þessum fjölbreytta málaflokki verið skýrð og birt sýn til framtíðar.

Brýnt er að ólíkir aðilar í stjórnsýslu og stoðkerfi greinanna taki höndum saman við að treysta grundvöll skapandi greina. Mikilvægt er að fá betri yfirsýn með hagtölum um skapandi starfsemi þannig að unnt sé að byggja upp sögulega sýn á þróun mála og öðlast samanburð við þær þjóðir sem lengst eru komnar í þessum efnum. Þannig geta skapandi greinar orðið ríkari þáttur í atvinnustefnu þjóðarinnar um leið og þær leggja mikið til menningarlegrar velsældar og sjálfsmyndar þjóðarinnar. Stuðning hins opinbera þarf að vanda. Um leið og ljóst er að stofnanir hins opinbera skipta miklu máli innan hverrar listgreinar er einnig mikilvægt að hugað sé að grasrótarstarfi þar sem frumsköpun fer fram og reynt er á þanþol listgreinanna.

Fjölgum stoðum íslensks atvinnulífs


Skapandi greinar eru þáttur í stefnu stjórnvalda bæði á sviði menningar og á sviði atvinnu og nýsköpunar. Í nýrri fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á áframhaldandi uppbyggingu verkefnasjóða skapandi greina. Stuðningur við kvikmyndagerð verður efldur myndarlega og til sögunnar koma nýir verkefnasjóðir á sviði myndlistar og hönnunar, auk sérstaks sjóðs sem ætlað er að styðja útflutning á íslenskri tónlist. Þá verða efldir þeir verkefnasjóðir sem fyrir eru á ólíkum sviðum.

Nauðsynlegt er að íhuga breytingar á atvinnuháttum í íslensku samfélagi. Eftir því sem íslenskt samfélag verður fjölbreyttara er mikilvægt að fjölga stoðum íslensks atvinnulífs og auka um leið félags- og menningarlega velsæld. Þar skipta skapandi greinar miklu máli sem sést á sívaxandi útflutningi hvers kyns menningarafurða.

Skapandi greinar ásamt margvíslegri þekkingarstarfsemi, rannsóknum og nýsköpun, geta orðið einn af máttarstólpum íslensks atvinnulífs. Hins vegar þarf umræða um efnahagsleg áhrif skapandi greina ekki að þýða að hvert verkefni verði metið út frá hagnaðarvonum. Undirstaða skapandi greina er listsköpunin sem alltaf á rétt á sér óháð öllum slíkum mælikvörðum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum