Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Um skilmála styrks frá mennta- og menningarmálaráðuneyti

Upplýsingar um skilmála styrkja frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Almennir skilmálar styrks sem gilda fyrir styrkveitingu á vegum ráðuneytisins

  

  1. Skuldbinding styrkþega

    Með því að taka á móti styrknum lýsir styrkþegi því yfir að hann ábyrgist að styrknum verði einungis varið til verkefnisins og þeirra markmiða sem lýst er í umsókn. Jafnframt skuldbindur hann sig til að skila greinargerð og fjárhagsuppgjöri og hlíta öðrum skilmálum styrksins.
  2. Upplýsingagjöf og skýrslur

    Styrkþega er skylt að tilkynna mennta- og menningarmálaráðuneyti tafarlaust ef upp koma aðstæður sem seinka verkefninu eða koma í veg fyrir að markmiðum eða skilyrðum fyrir styrkveitingu sé fullnægt.
    Styrkþega ber ávallt að verða við beiðni mennta- og menningarmálaráðuneytis um upplýsingar um stöðu verkefnisins og láta því í té allar upplýsingar og gögn um verkefnið, þar á meðal bókhaldsgögn.
    Styrkþegi skal senda mennta- og menningarmálaráðuneyti greinargerð um verkefnið og fjárhagsuppgjör vegna þess innan 60 daga frá því verkefninu lýkur. Greinargerðin skal staðfest af styrkþega og óháðum einstaklingi/skoðunarmanni eða endurskoðanda.
    Ljúki verkefninu ekki á því ári sem styrkurinn er veittur, skal senda ráðuneytinu tölvupóst til að upplýsa um stöðu verkefnisins fyrir lok janúar árið eftir.
    Eyðublað fyrir greinargerð fæst í móttöku ráðuneytisins og á veffanginu menntamalaraduneyti.is.
    Styrkþegi ber ábyrgð á að skila skattyfirvöldum fjárhagsuppgjöri og að öll gögn sem uppgjör byggir á séu varðveitt í a.m.k. fimm ár. Um eftirlit Ríkisendurskoðunar gilda lög nr. 86/1997 um Ríkisendurskoðun.
  3. Styrktaraðili nefndur í kynningarefni

    Á öllu útgefnu efni, auglýsingum o.s.frv. sem tengist hinu styrkta verkefni skal koma fram að það er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneyti.
  4. Endurkröfuréttur ráðuneytisins

    Ef styrknum eða hluta hans er varið í annað en tilgreint er í umsókn eða skilmálar skv. lið 2 og 3 ekki uppfylltir, teljast forsendur styrkveitingar brostnar. Áskilur ráðuneytið sér þá rétt til að ógilda styrkveitinguna og krefja styrkþega um endurgreiðslu á greiddum styrk, að hluta til eða í heild sinni, ásamt kostnaði við innheimtu.
    Reynist útgjöld vegna verkefnis samkvæmt umsókn lægri en útborguð styrkfjárhæð skal styrkþegi ótilkvaddur endurgreiða ofgreiddan styrk innan 30 daga frá því fjárhagsuppgjör verkefnis lá fyrir. Að öðrum kosti innheimtir ráðuneytið ofgreiddan styrk ásamt innheimtukostnaði.
    Styrkur fellur niður hafi hann ekki verið sóttur innan eins árs frá dagsetningu styrkbréfs.
  5. Ágreiningur

    Ágreiningi milli styrkþega og mennta- og menningarmálaráðuneytis sem þessum aðilum tekst ekki að leysa skal vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur.

Framangreindir skilmálar gilda nema annað sé tekið fram í bréfin


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum