Hoppa yfir valmynd
7. júní 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Vestnorræn ráðstefna um jafnréttismál

Mánudaginn 7. júní verður haldin vestnorræn ráðstefna um jafnréttismál í boði forseta Alþingis undir yfirskriftinni: Staða og völd kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi á Vestur-Norðurlöndum.Mánudaginn 7. júní verður haldin vestnorræn ráðstefna um jafnréttismál í boði forseta Alþingis undir yfirskriftinni: Staða og völd kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi á Vestur-Norðurlöndum.

Mánudaginn 7. júní verður haldin vestnorræn ráðstefna um jafnréttismál í boði forseta Alþingis undir yfirskriftinni: „Staða og völd kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi á Vestur-Norðurlöndum“.

Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi fjalla um stöðu vestnorrænna kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi. Gerð verður grein fyrir sértækum leiðum til að jafna völd karla og kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi, auk þess sem fjallað verður um kynjaða hagstjórn og jafnréttisuppeldi.

Að loknum erindum verða pallborðsumræður þar sem konur sem eiga sæti á þjóðþingum Vestur-Norðurlandanna taka þátt ásamt fleirum.

  • Ráðstefnan verður haldin í Þjóðmenningarhúsinu frá kl. 09.30-16.30. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.
  • Bein útsending verður frá ráðstefnunni, nánari upplýsingar um útsendinguna er að finna á vef Alþingis undir tilkynningum á forsíðu.
  • Dagskrá ráðstefnunnar (PDF)

Nánari upplýsingar veitir: Magnea Marinósdóttir, sérfræðingur, alþjóðadeild Alþingis
Netfang: [email protected], sími: 8246407.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum