Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Málþing um fjölmiðla 22. febrúar 2006

Menntamálaráðuneyti og Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti við Háskóla Íslands bjóða til málþings um fjölmiðla.

Menntamálaráðuneyti og Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti við Háskóla Íslands bjóða til málþings um fjölmiðla, miðvikudaginn 22. febrúar 2006. Málþingið verður í Þjóðminjasafni Íslands milli kl. 13.00 – 16.00.

DAGSKRÁ MÁLÞINGSINS

13.00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir flytur ávarp

13.15 Sigve Gramstad, fyrrverandi forstjóri Medietilsynet og sérfræðingur Evrópuráðsins, fjallar um fjölmiðlalögin í Noregi og ber saman við íslenskar aðstæður

13.45 Guðbjörg Hildur Kolbeins, fjölmiðlafræðingur, skoðar hvernig hægt sé að stofna nýjan fjölmiðil á Íslandi í dag

14.15 – 14.30 Kaffihlé

14.30 Elfa Ýr Gylfadóttir, fjölmiðlafræðingur, fjallar um forsendur og markmið nýrra fjölmiðlalaga

15.00 Þorbjörn Broddason stýrir panelumræðum. Í panel sitja Páll Magnússon, útvarpsstjóri, Magnús Ragnarsson, forstjóri Skjás Eins, Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins og Ari Edwald, forstjóri 365.

Fundarstjóri er Þorbjörn Broddason, prófessor við Háskóla Íslands.
Málþingið er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu. Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

Frekari upplýsingar veitir Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri í menntamálaráðuneyti.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum