Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

NÝR FARVEGUR - Ráðstefna um hönnunarstefnu Íslands föstudaginn 26. ágúst.

Íslenski hönnunargeirinn hefur vaxið undanfarin ár en möguleikar hönnunar eru þó síður en svo fullnýttir. Víða leynast vannýtt tækifæri til vöruþróunar, nýsköpunar og þjónustuhönnunar og enn gætir þeirra skoðana að hönnun takmarkist við útlitslega þætti.

Hönnunarstefna - nýr farvegur 2011
Hönnunarstefna - nýr farvegur 2011

Nú eru nýir tímar sem kalla á nýja hugsun og nýjar leiðir

Í þessum mánuði fór Apple hönnunarfyrirtækið yfir Exxon olíurisann sem verðmætasta fyrirtæki heims. Þó það hafi staðið stutt þá er það táknrænt fyrir þau straumhvörf sem nú eru og staðfestir mikilvægi heildrænnar hönnunar.

Skapandi greinar eru af mörgum þjóðum álitnar einn mikilvægasti vaxtabroddurinn í atvinnusköpun og samkeppnishæfni þjóða þar sem gæði og heildstæð framsetning skipta sífellt meira máli. Rannsóknir hafa sýnt að að fyrirtæki sem nýta hönnun í vöruþróun og nýsköpun vaxa hraðar og eru líklegri til að ná árangri á alþjóðlegum markaði.

Hönnun skiptir gríðarlegu máli í þróuninni í átt að sjálfbæru samfélagi og grænu hagkerfi þar sem unnið er á heildrænan hátt út frá umhverfis-, samfélags- og efnahagslegum þáttum.

Íslenski hönnunargeirinn hefur vaxið undanfarin ár en möguleikar hönnunar eru þó síður en svo fullnýttir. Víða leynast vannýtt tækifæri til vöruþróunar, nýsköpunar og þjónusthönnunar og enn gætir þeirra skoðana að hönnun takmarkist við útlitslega þætti.

Fjölmargar þjóðir heims hafa mótað sér hönnunarstefnu og hafa Norðurlöndin verið þar í fremstu víglínu og náð góðum árangri - og nú er komið að okkur!

Á ráðstefnunni „Nýr farvegur“, 26. ágúst 2011 í Hörpunni verður kafað dýpra í þessi málefni. Bæði innlendir og erlendir fyrirlesarar munu fjalla um gildi hönnunar frá ýmsum sjónarhornum. Ráðstefnan er opin öllum og fer fram á ensku. Skráning fer fram á midi.is

NÝR FARVEGUR – Fyrirlesarar:

  • Jan R. Stavik - hagfræðingur og framkvæmdastjóri norska hönnunarráðsins.
  • Elizabeth (Dori) Tunstall - prófessor við Swinburne háskólann í Melbourne og skipulagði mótun hönnunarstefnu Bandaríkjanna.
  • John Thackara -  rithöfundur, fyrirlesari og ritstjóri  hefur verið áhrifamikill í umræðunni um tengsl hönnunar við samfélag, umhverfi og efnahag síðan á áttunda áratugnum.
  •  Auk þeirra verða kynnt vel heppnuð dæmi um beitingu hönnunarhugsunarháttarins við vöruþróun og
      verðmætasköpun.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum