Menningarmál

Þjóðhátíðargjöf Norðmannna

Þjóðhátíðargjöf Norðmanna er styrktarsjóður sem úthlutar uppsöfnuðum vöxtum að þjóðargjöf Noregs til íslensku þjóðarinnar í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1974. Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum árið 1976. Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 279/1975.

Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er tilgangur hans „að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli“. Í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur beri sjálfir dvalarkostnað í Noregi.

Mennta- og menningarmálaraðuneyti tekur við styrkumsóknum og veitir nánari upplýsingar um sjóðinn.

Styrkjum er að jafnaði úthlutað árlega.

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar þriggja manna stjórn til fjögurra ára í senn.





Núverandi stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna:
Skipuð af forsætisráðherra til 08. maí 2010

  • Ingimundur Friðriksson, formaður
  • Snjólaug Ólafsdóttir
  • Margit F. Tveiten



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica